Handbók tungumálamiðstöðva: Leiðarvísir að uppsetningu, rekstri og stækkun tungumálamiðstöðva er helsta afurð í LRC-verkefninu. Hún er fáanleg á öllum 16 tungumálum verkefnisins og hægt er að hlaða henni niður af þessari vefsíðu. Hún fjallar um hagnýt atriði þess að stofnsetja, reka og þróa tungumálamiðstöðvar, með áherslu á stjórnun, notendur, þjónustu og aðstöðu. Hún nýtir reynslu allra aðila að LRC-verkefninu og inniheldur gátlista, raundæmi, ráðleggingar og tilvísanir. Önnur skjöl, tilvísanir og efni, sem við kemur verkefninu, en var ekki hægt að hafa með í sjálfri útgáfunni, er mögulegt að nálgast á netinu undir Viðbótarefni. Þessi liður fylgir uppbyggingu handbókarinnar og inniheldur efni á mismunandi tungumálum og sniðum. Rápmálið er enska, en ef nauðsynlegt er, er hægt að nota íslensku útgáfu handbókarinnar til að auðvelda sér að rata. Viðbótarefni er sívaxandi liður.
Við vonumst til að hann verði þér til góðra
nota og öllum er velkomið að bæta við hann með
því að senda efni (á hvaða tungumáli sem er)
með tölvupósti til [email protected] |